Umsóknir um íslensk vegabréf
Panta þarf tíma vegna umsókna um vegabréf
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að panta tíma í síma 0207 259 3999 eða á netfangið emb.london@mfa.is. Gjöld óskast greidd í reiðufé.
Afgreiðsluhraði
Þjóðskrá Íslands framleiðir vegabréfin og póstsendir beint til umsækjenda. Sumarið 2013 er afgreiðslutíminn 10 virkir dagar + 3-4 dagar fyrir póstsendingu. Þeir sem þurfa vegabréfið fyrr greiða forgangsgjald. Sjá gjaldskrá.
Þjónusta ræðismanna
Vakin er athygli á því að ræðismenn geta ekki lengur tekið við umsóknum um vegabréf.
Ræðismenn geta eftir sem áður haft milligöngu um útgáfu neyðarvegabréfa og framlengingu vegabréfa eftir því sem við á í sérstökum neyðartilfellum. Sjá gjaldskrá.
Ferlið
Umsækjendur verða að koma í eigin persónu til sendiráðsins til að sækja um nýtt vegabréf. Þeir verða að hafa með sér eftirfarandi:
- Eldra vegabréf.
- Umsóknargjald - Sjá gjaldskrá.
Ekki þarf að koma með passamynd þar sem lífkennamynd er tekin á staðnum.
Vegabréf fyrir börn
Börn fædd í Bretlandi þurfa fá kennitölu hjá Þjóðskrá Íslands til þess að hægt sé að sækja um vegabréf fyrir þau.
Við vegabréfsumsóknir barna er þess krafist að báðir foreldrar eða forráðamenn komi í sendiráðið og veiti samþykki sitt fyrir umsókninni.
Ef annað forsjárforeldra barns getur ekki mætt skal hann/hún rita vottað samþykki sitt á þar til gert eyðublað. Ef minnsta óvissa er um forræði þess sem leggur fram umsókn um vegabréf barns skulu allar þar til greindar upplýsingar sannreyndar eftir fremsta megni.
Heimildin til að víkja frá því skilyrði að báðir forsjárforeldrar standi að umsókn um vegabréf hefur nú verið þrengd til mikilla muna. Eingöngu er heimilt að gefa út vegabréf samkvæmt umsókn annars forsjárforeldris þegar hitt forsjárforeldrið er ófært um að veita samþykki sitt vegna sjúkdóms, fjarvistar eða annarra sérstakra aðstæðna að undangenginni athugun á umræddum aðstæðum og mati á því hvort hætta sé á að barn verði fært úr landi með ólögmætum hætti. Fullyrðingar um að annað foreldrið sé erlendis þar sem ekki náist í það eru alls ekki fullnægjandi grundvöllur.
Sjá nánar á heimasíðu Þjóðskrár Íslands
Vegna vegabréfsumsókna fyrir börn þarf eftirfarandi:
- Eldra vegabréf.
- Fæðingarvottorð ef um fyrsta vegabréf er að ræða.
- Umsóknargjald - Sjá gjaldskrá.
- Vottað samþykki þess foreldris sem kemst ekki ef það á við. Sjá eyðublað.
Glötuð eða stolin vegabréf
Öll vegabréf sem hafa verið tilkynnt glötuð hjá Þjóðskrá Íslands eða hjá sendiráðinu í London þegar sótt er um nýtt vegabréf eru ógild og er ekki hægt að nota þau aftur. Þjóðskrá Íslands getur gefið vegabréf út með skemmri gildistíma en 5 ár hafi viðkomandi ítrekað glatað vegabréfi eða ætla má að hann eða hún hafi misfarið með vegabréf. Sjá eyðublað.
Nafnabreytingar
Ef umsækjandi hefur tekið upp nýtt eftirnafn eða breytt á einhvern hátt nafni sínu þarf að vera búið að ganga frá tilkynningu um slíkt til Þjóðskrár Íslands áður en sótt er um vegabréf. Slíkt gerist ekki sjálfkrafa þó makar taki upp nafn hvors annars við hjónavígslu í Bretlandi.


