Ökuskírteini

Umsóknir um endurnýjun ökuskírteinis

Hægt er að sækja um endurnýjun á íslensku ökuskírteini í sendiráðinu í London.

Umsókninni þarf að fylgja svokallað kennispjald, sem útvega þarf frá Ríkislögreglustjóra. Nauðsynlegt er að hringja í sendiráðið fyrirfram, gefa upp nafn og íslenska kennitölu og biðja sendiráðið að útvega kennispjaldið. Fylla þarf út umsókn í sendiráðinu, koma með eina mynd og greiða umsóknargjald. Sjá gjaldskrá.

Afgreiðslutími ökuskírteinis er um fjórar vikur.

Bent er á að ætlast er til að Íslendingar sem eru með fasta búsetu erlendis, þ.e.a.s. búnir að búa í meira en 6 mánuði í landinu, leggi inn íslenska ökuskírteinið og fái útgefið skírteini þess lands í staðinn. Það eru lögregluyfirvöld í viðkomandi landi sem óska eftir þessu. Ökuskírteinið er því lagt inn hjá embættinu sem gefur út nýtt skírteini og sér það embætti um að senda ökuskírteinið til Íslands.



Inspired by Iceland