Viðskiptanet

Yfirlit

Sænsk-íslenska viðskiptanetið er vettvangur fyrirtækja sem eiga viðskipti við Ísland eða hafa á huga á að koma á viðskiptatengslum við landið. Einnig er hlutverk þess að vekja athygli á því sem máli skiptir fyrir verslunartengsl milli landanna, m.a. með því að halda reglulega umræðufundi í Svíþjóð. Á heimasíðu sendiráðsins er að finna upplýsingar um fyrirtækin sem eiga aðild að netinu og eru þær ætlaðar til að auðvelda fyrirtækjum, sem áhuga hafa á viðskiptatengslum, að komast í samband við rétta aðila.

Ef þúhefur áhuga á að gerast aðili að viðskiptanetinu biðjum við þig vinsamlegast að senda eftirfarandi upplýsingar til sendiráðsins á icemb.stock@utn.stjr.se:

- Nafn einstaklings / nafn fyrirtækis

- Starfssvið / Starfssvið fyrirtækis í Svíþjóð (og á Íslandi)

- Stutt lýsing á fyrirtækinu, t.d. stærð, velta, starfslið

- Heimasíða



Inspired by Iceland