Um sendiráðið
Til þjónustu reiðubúin
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi er opinber fulltrúi Íslands í Svíþjóð. Stjórnmálasamband milli Íslands og Svíþjóðar var stofnað 27. júlí 1940. Sendiráðið er líka sendiráð Íslands gagnvart Albaníu, Kúveit, Kýpur og Sýrlandi. Sendiráðið er umfram allt þjónustustofnun.
Aðalverkefni sendiráðsins eru:
- Að fara með íslenska hagsmuni gagnvart sænskum stjórnvöldum og stjórnvöldum umdæmislandanna
- Að vera fulltrúi Íslands í þeim löndum sem nefnd voru
- Að annast þjónustu við Íslendinga í Svíþjóð og umdæmislöndum eftir því sem þörf krefur
- Að auka útflutning vöru og þjónustu til Svíþjóðar og stuðla almennt að aukanum viðskiptum landanna allra og Íslands
- Að auka menningarsamskipti landanna og að koma íslenskri menningu á framfæri í Svíþjóð og í umdæmislöndunum
- Að skipuleggja og viðhalda ræðismannatengslum við Íslands í löndunum
- Að miðla hvers konar upplýsingum um Ísland
Auk sendiherrans, Gunnars Gunnarssonar, starfa að jafnaði þrír starfsmenn við sendiráðið. Þá eru þar stundum starfsnemar og stundum fólk í sérstökum verkefnum. Nú eru starfsmennirnir þessir:
Ólöf Hrefna Kristjánsdóttir, sendiráðunautur og staðgengill sendiherra
Elín Óskarsdóttir, ritari sendiherra
Rakel Mánadóttir, fulltrúi (í fæðingarorlofi)
Elín Jónsdóttir, fulltrúi
Ræðismenn í umdæmislöndum sendiráðsins eru 13 talsins, 9 í Svíþjóð, tveir á Kýpur, einn í Albaníu og einn í Sýrlandi.
Sendiráðið er til húsa að Kommendörsgatan 35 í Stokkhólmi.
Sími 46 (0) 8 442 8300


