26.10.2011

Ráðherra undirritar samninga um aukið samstarf við Rússa um orku- og ferðamál

Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-, orku- og ferðamálaráðherra
Fjöldi manns sótti kaupstefnu og kynningarfund um Ísland í Moskvu í gær sem haldin voru í tilefni komu Katrínar Júlíusdóttur, iðnaðar-, orku- og ferðamálaráðherra. Ráðherra fundaði einnig með rússneskum stjórnvöldum og fulltrúum fyrirtækja  í orkuiðnaði og ferðaþjónustu og kynnti sérstaklega íslensk átaksverkefni ferðaþjónustunnar. Rússnesk og íslensk orkufyrirtæki áttu á sama tíma fundi um væntanleg samstarfsverkefni.
 
Ráðherrann setti þing um endurnýjanlega orku á mánudaginn og undirritaði þar ásamt Sergei Shmatko, orkuráðherra Rússlands, samstarfssamning milli ríkjanna um samstarf á því sviði. Í gær undirrituðu Katrín Júlíusdóttir og Alexander Ratko, aðstoðar ferðamálaráðherra Rússlands, samning til fimm ára um samstarf ríkjanna um ráðstafanir til að efla ferðamannastraum milli landanna. 
 
Í för með ráðherranum voru fulltrúar íslenskra orkufyrirtækja, sem undirbúa nú samstarf við rússnesk fyrirtæki um stór verkefni á sviði orkuöflunar og fulltrúar 10 fyrirtækja í íslenskri ferðaþjónustu, sem áttu viðskiptafundi við rússneska ferðaskipuleggjendur.

 



Inspired by Iceland