19.03.2012
Íslenskt vatn til Rússlands
Sendiherra Íslands í Moskvu hitti 16. mars. Jón Ólafsson, stjórnarformann Icelandic Water Holdings og rússneska samstarfsmenn fyrirtækisins, sem kynntu fyrir honum innflutning á átöppuðu íslensku neyzluvatni til Rússlands undir vörumerkinu Icelandic Glacial.
Vatnsinnflutningurinn hófst fyrir tveimur árum og hefur vaxið hægt en örugglega. Það er mat Jóns og hinna rússnesku samstarfsmanna hans að Rússlandsmarkaður sé mjög lofandi fyrir svo sérstaka vöru. Nánari upplýsingar er að finna á síðunni http://icelandicglacial.com


