17.02.2012

Íslensk matvara kynnt á rússneskri matvælasýningu

Í þessari viku hafa íslenskir matvælaframleiðendur kynnt íslenskar kjöt- og fiskafurðir á stærstu matvælasýningu Rússlands, ProdExpo í Moskvu, annað árið í röð. Sendiráð Íslands hefur tekið þátt með aðstoð við undirbúning og með því að bjóða fulltrúum helstu matvæladreifingarfyrirtækja Rússlands að kynnast íslenskum réttum.

Friðrik Sigurðsson, matreiðslumeistari hafði veg og vanda af kynningu rétta úr íslensku lambakjöti og fiski í boði, sem Albert Jónsson, sendiherra, hélt fyrir forsvarsmenn dreifingarfyrirtækja og fréttamenn, sem fjalla um matgæði.

Þá hélt Friðrik Sigurðsson daglangt námskeið fyrir 64 rússneska matreiðslumeistara frá ýmsum helstu veitingastöðum Moskvu og kenndi þar rétta meðferð og matreiðslu íslensks lambakjöts og fisks. Námskeiðið var í boði eins stærsta matvæladreifingarfyrirtækis Rússlands.

Á meðfylgjandi mynd má sjá er Albert Jónsson sendiherra og Ása Baldvinsdóttir, heimsækja fulltrúa íslenska kjötiðnaðarins á íslensku sýningardeildinni á ProdExpo.



Inspired by Iceland