15.05.2012

Heimsókn til Múrmansk

Sendiherra heimsótti Múrmansk 2.-4. maí til að vera viðstaddur opnun íslensks-rússnesks fyrirtækis, Murmansk Apama. Í verksmiðju fyrirtækisins, sem er mjög tæknivædd, verða þurrkaði fiskhausar, dálkar, sporðar o.fl. fyrir Nígeríumarkað. Í heimsókninni hitti sendiherra héraðsstjóra Múrmansk héraðs, borgarstjóra Murmansk borgar og Vitaly Kasatkin, kjörræðismann Íslands. Einnig var farið í heimsókn á sjóherssafnið, einkum til að skoða það í safninu sem tengist siglingum skipalesta milli Íslands og Norður-Rússlands í síðari heimsstyrjöld.

Á myndinni til vinstri eru, f.v.: Alexey Veller, borgarstjóri Múrmansk, Hilmar Þór Valgarðsson, framkvæmdastjóri Murmansk Apama, Albert Jónsson, sendiherra Íslands í Rússlandi, Vitaly Kasatkin, kjörræðismaður Íslands í Múrmansk og Þórir Matthíasson, einn eigenda Murmansk Apama.

Á myndinni til hægri er sendiherra ásamt Marinu Kovtun, héraðsstjóra Murmansk héraðs.



Inspired by Iceland