08.12.2011

Afhending trúnaðarbréfs í Rússlandi

Albert Jónsson sendiherra Íslands afhendir forseta Rússlands trúnaðarbréfAlbert Jónsson, sendiherra, afhenti 7. desember 2011 Dmitri Medvedev, forseta Rússlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Rússlandi.

Forsetinn sagði við þetta tækifæri að rússnesk stjórnvöld mætu mikils samskiptin við Ísland. Þau færu hratt vaxandi og næðu til sífellt fleiri sviða, þar á meðal til nýsköpunar, sem hefði mikla þýðingu fyrir Rússland. Forsetinn lagði einnig sérstaka áherslu á samstarf ríkjanna tveggja um málefni Norðurskautsins.
 



Inspired by Iceland