10.01.2013
Reiselivsmessen í Osló 2013

Íslandsstofa og ferðamálafulltrúi sendiráðsins taka þátt í Reiselivsmessen ferðasýningunni sem haldin verður dagana 11.-13. janúar 2013 í Osló.
Um er að ræða sýningu með áherslu á neytendur (B2C), en fyrri hluti föstudagsins 11. janúar er ætlaður fagfólki (B2B). Sýningin fer fram í Telenor höllinni í Osló.
Á sýningunni gefst fyrirtækjum í ferðaþjónustu tækifæri til að kynna sig, koma á viðskiptasamböndum og hitta neytendur. Sýningin hentar jafnframt fyrirtækjum sem stunda eða hafa áhuga á að hefja útflutning á vörum til Noregs.
Allar frekari upplýsingar veitir Margrét Helga Jóhannsdóttir, margret@islandsstofa.is
Nánari upplýsingar um Reiselivsmessen er að finna á vef sýningarinnar


