Myndbönd til leiðbeiningar um framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
Myndböndunum er ætlað að auðvelda kjósendum og þeim sem vinna við utankjörfundar-atkvæðagreiðslu framkvæmdina
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013 hófst 4. mars 2013.
EFTA-dómstóllinn sýknar Ísland – Icesave-málinu lokið
Íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis hugi að kosningarrétti sínum vegna kosninga á næsta ári
Kynningarvefur er lýtur að þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs 20. október 2012
Opnun íslenska skálans á Feneyjartvíæringnum
Spænsk - íslenska listatvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson eru fulltrúar Íslands á tvíæringnum að þessu sinni með sýninguna “Under deconstruction”.
Ferðaviðvörun vegna Japans
Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðalögum til Japan. Þeir sem engu að síður hyggja á ferðalög til Japan eru beðnir um að láta ráðuneytið vita um ferðaáætlanir sínar.
Utanríkisráðuneytið ráðleggur Íslendingum sem eru staddir á Tókýó svæðinu eða fyrir norðan Tókýó að íhuga að flytja sig suður á bóginn þar til aðstæður skýrast. Borgaraþjónustan mun eftir atvikum liðsinna fólki við skipulag ferða en í öllu falli er fólk beðið um að láta vita um allar breytingar á högum sínum.
Ráðuneytið ráðleggur fólki áfram fylgjast með leiðbeiningum japanskra stjórnvalda og ferðaleiðbeiningum annarra ríkja, sérstaklega norrænu ríkjanna.
Í kjölfar hamfaranna í Japan ríkir enn óvissuástand á ákveðnum svæðum, viðvarandi jarðskjálftahætta, auk þess sem truflanir hafa orðið á samgöngum, birgðaflutningum og í raforkukerfi. Þá er ennfremur ótryggt ástand í kjarnorkuverinu í Fukushima og geislamengun í næsta nágrenni þess. Í öryggisskyni er íslenskum ríkisbor
Ferðaviðvörun vegna Japan
Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðalögum til Japan að svo stöddu. Íslendingum í Japan er jafnframt ráðlagt að forðast ferðalög til svæða í næsta nágrenni við Fukushima kjarnorkuverið.
Þeir sem engu að síður hyggja á ferðalög til Japan eru beðnir um að láta ráðuneytið vita um ferðaáætlanir sínar. Ráðuneytið ráðleggur fólki ennfremur að fylgjast með ferðaleiðbeiningum annarra ríkja, t.d. norrænu ríkjanna. Ráðuneytið hvetur Íslendinga í Japan til að fylgjast vel með fréttum og fyrirmælum þarlendra stjórnvalda. Varðandi ástand mála við kjarnorkuverið í Fukushima er jafnframt bent á upplýsingar frá Geislavörnum ríkisins http://www.gr.is/.
Ráðuneytið og sendiráð Íslands í Tókýó fylgjast áfram grannt með þróun mála og hafa samstarf við önnur norræn stjórnvöld vegna ástandsins í Japan.
Hægt er að ná sambandi við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900 eða með því að senda tölvupóst á netfangið
Búið að ná sambandi við alla Íslendinga sem vitað er um í Japan
Tekist hefur að ná sambandi við þá Íslendinga sem vitað er um í Japan og eru þeir allir óhultir. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins vinnur nú að því að afla fyllri upplýsinga um staðsetningu þeirra og aðstæður. Ráðuneytið vill enn hvetja Íslendinga í Japan til að fylgjast vel með fyrirmælum stjórnvalda og fréttaflutningi. Vakt verður í utanríkisráðuneytinu yfir helgina vegna ástandsins í Japan.
Hægt er að ná sambandi við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900 eða með því að senda tölvupóst á netfangið help@mfa.is
Ferðaviðvörun í kjölfar jarðskjálftans í Japan
Í kjölfar jarðskjálftans sem varð við strendur Japans í morgun varar utanríkisráðuneytið við flóðbylgjuhættu á ströndum við Kyrrahaf. Ráðuneytið ráðleggur Íslendingum sem vita um vini og ættingja á þessum svæðum að setja sig í samband við þá og fullvissa sig um að þeir séu meðvitaðir um hættuna og haldi sambandi við ættingja sína á Íslandi eftir atvikum.
Fólk sem hefur áhyggjur af ættingjum sem eru staddir á hættusvæðinu er beðið að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900. Ráðuneytið hefur virkjað viðbragðsáætlun og ráðleggur Íslendingum á þessu svæði að fylgjast grannt með viðvörunum stjórnvalda og fjölmiðlum á staðnum. Utanríkisráðuneytið ásamt sendiráði Íslands í Japan vinnur að því að afla upplýsinga um öryggi Íslendinga á svæðinu.
Utanríkisráðuneytið vill benda fólki á að upplýsingar um flóðbylgjuviðvaranir í Kyrrahafi er m.a. að finna á eftirtöldum vefsíðum:
Kosið um Icesave 9. apríl 2011
Ráðstefna um jarðhitanýtingu Japans og Íslands 16. nóvember 2010
Ráðstefnan fer fram þann 16. nóvember í Japan, en að henni standa m.a. sendiráð Íslands í Tókýó, Japan Energy Assosiacion, o.fl. aðilar.
Nánari upplýsingar á ensku um ráðstefnuna er að finna á vefsíðu ráðstefnunnar.
Ferðaskrifstofan K.K. Viking og Skyr-Japan hófu starfsemi í sendiráði Íslands í Japan
Ferðaskrifstofan K.K. Viking og Skyr-Japan hófu fyrir skömmu starfsemi í sendiráði Íslands í Japan og verða þar með fasta aðstöðu í framtíðinni. K.K. Viking er umboðasaðili fyrir Icelandair, Air Greenland, Atlantic Airways (færeyska flugfélagið) og Air Iceland í Japan.
Forsætisráðherra á lista Time yfir tíu helstu kvenleiðtoga heims
Libia Castro og Ólafur Ólafsson sýna fyrir Íslands hönd á Feneyjatvíæringnum 2011
Spænsk-íslenska listamannatvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson hefur verið valið til að sýna fyrir Íslands hönd á Feneyjatvíæringnum, La Biennale di Venezia 2011.
Save the Date
HönnunarMars 2010 verður haldinn dagana 18.- 21. mars. Dagskrá HönnunarMarsins verður spennandi og glæsileg en fjöldi viðburða, áhugaverðra fyrirlestra og sýninga munu endurspegla fjölbreytileika íslenskrar hönnunar.
Katrín Ólína fær Forum Aid verðlaunin
Hönnuðurinn Katrín Ólína hlaut hin virtu Forum Aid Verðlaun í gær fyrir hönnun sína á Cristal Bar í Hong Kong, en verðlaunin eru stærstu norrænu verðlaunin innan hönnunar og arkitektúrs.
Borgaraþjónusta utanríkisþjónustunnar
Íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis, ferðamenn, námsmenn og aðrir leita nú í auknu mæli til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Vill sendiráðið því benda Íslendingum á að leiðbneingar fyrir íslenska ríkisborgara sem lenda í vanda eða neyð erlendis er að finna á vefsíðunni: http://www.utanrikisraduneyti.is/


