Vegabréf
Einungis er hægt að sækja um íslensk vegabréf á Íslandi eða hjá sendiráðum Íslands í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Osló, Lundúnum, Peking og Washington.
Framlenging vegabréfs
Sendiráðinu og ræðismönnum er heimilt að framlengja gildistíma vegabréfs um eitt ár frá þeim degi er vegabréfið rennur út.
Útgáfa neyðarvegabréfs
Í brýnustu neyð geta sendiráðið og ræðismenn gefið út neyðarvegabréf. Neyðarvegabréf eru einungis gefin út ef umsækjandi getur ekki sótt um vegabréf í sendiráði eða á Íslandi. Tekið skal fram að neyðarvegabréf eru ekki ákjósanleg ferðaskilríki.


