Varðskipið Þór til sýnis
Varðskipið Þór er væntanlegt til Þórhafnar á fimmtudagsmorgun og verður varðskipið opið til sýnis fyrir almenning föstudaginn 15. júní frá kl. 14:00-17:00.
Varðskipið var afhent í Chile 23. september síðastliðinn og hófst siglingin til Íslands 28. september. Mánuði síðar eða 26. október kom varðskipið til Vestmannaeyja sem var fyrsta höfn skipsins á Íslandi.
Koma varðskipsins er bylting í vöktun, öryggismálum, leit og björgun innan íslenska hafsvæðisins. Á síðustu árum hefur umferð frá Noregi og Rússlandi aukist stórlega og er vissulega þörf á öflugu varðskipi til að vera til taks enda er því spáð að með opnun norðaustursiglingarleiðarinnar eigi umferð um svæðið eftir að aukast umtalsvert. Þór gegnir þar mjög mikilvægu hlutverki í samstarfi þjóða á Norður Atlantshafi.
Tæknilegar upplýsingum um Þór eru hér:
http://www.lhg.is/media/skip/thor/VS_THOR_Einblodungur_web.pdf


