07.09.2012
Jónína Guðnadóttir í Listaskálanum
Jónína Guðnadóttir listakona sýnir verk sín í Listasafni Færeyja 7. september - 7. október 2012.
Jónína verður á staðnum við opnun sýningarinnar, föstudaginn 7. september kl. 16. Boðið verður upp á léttar veitingar. Listasafnið gefur út bækling í tilefni sýningarinnar og textann hefur Nils Ohrt, forstöðumaður Listasafnsins, skrifað. Bæklingurinn kostar kr. 100,-
Allir eru hjartanlega velkomnir á opnunina, föstudaginn 7. september kl. 16.


