Gyrðir Elíasson hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011
Í rökstuðningi dómnefndar segir: „Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 hlýtur íslenski rithöfundurinn Gyrðir Elíasson fyrir smásagnasafnið „Milli trjánna", stílhreint og framúrskarandi skáldverk sem lýsir innri og ytri átökum og er í samræðu við heimsbókmenntirnar."
Gyrðir Elísasson (1961) gaf út sína fyrstu bók árið 1983, og eftir hann hafa komið út fjölmargar smásagna- og ljóðabækur og fimm skáldsögur. 13 rithöfundar frá Norðurlöndunum og sjálfstjórnarlöndunum voru að þessu sinni tilnefndir til verðlaunanna. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs nema 350.000 dönskum krónum, nær 7,5 milljónum íslenskra króna.
Gyrðir Elíasson mun veita verðlaununum viðtöku á Norðurlandaráðsþinginu 2. nóvember 2011 í Kaupmannahöfn. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fagna hálfrar aldar afmæli í ár og í tilefni þess stendur Norðurlandaráð fyrir fjölda viðburða.
Nánari upplýsingar um hálfrar aldar afmælið og alla rithöfundana á vefsíðunni http://www.norden.org/bokmenntaverdlaunin
Nánari upplýsingar um verðlaunahafann
Eva Ström, formaður dómnefndar +46 705 623040
Fréttatenglar: Jesper Schou-Knudsen, ráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni +45 21 71 71 35 jsk@norden.org
Silje Bergum Kinsten, ráðgjafi hjá Norðurlandaráði +45 21 71 71 56 siki@norden.org
Tengt efni
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt allt frá árinu 1962, þau eru veitt fyrir fagurbókmenntir sem ritaðar eru á norrænu tungumáli. Það geta verið skáldsögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða ritgerðasöfn og önnur bókmenntaverk. Markmið verðlaunaveitingarinnar er að auka áhuga Norðurlandabúa á bókmenntum og tungumáli nágrannalandanna og á sameiginlegri menningararfleifð Norðurlanda.


