Lyrik og landskab - Jónas Hallgrímsson 1807-2007
Í gær opnaði á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn afmælissýning um Jónas Hallgrímsson undir yfirskriftinni Lyrik og Landskab. Á sýningunni er sjónum m.a. beint að kaupmannahafnarárum Jónasar, 1831-1845. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra opnaði sýninguna og Ólafur Kjartan Sigurðsson, óperusöngvari, söng nokkur af ljóðum skáldsins.
Sýningin er liður í Jónasarárinu svokallaða sem stendur frá 16. nóvember 2006 til 16. nóvember 2007, en þá verða liðin 200 ár frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar.
Sýningin er opin til 21. október 2007.


