Katrín Ólína fær Forum Aid verðlaunin
Hönnuðurinn Katrín Ólína hlaut hin virtu Forum Aid Verðlaun í gær fyrir hönnun sína á Cristal Bar í Hong Kong, en verðlaunin eru stærstu norrænu verðlaunin innan hönnunar og arkitektúrs.
Verðlaunin er mikill heiður fyrir Katrínu Ólínu og mikil hvatning fyrir íslenska hönnuði og arkitekta almennt, en í dag sem aldrei fyrr er mikilvægt að íslenskir hönnuðir komu verkum sínum á framfæri á alþjóðlegum markaði svo að nýta megi íslenskt hugvit sem víðast.
Verðlaunin eru afhent í tengslum við Stockholm Furniture Fair og Stockholm Design Week sem hefst formlega á morgun fimmtudag 5. febrúar.
http://www.forumaid.com/eng/forum_aid_awards_2009/
http://www.honnunarmidstod.is/Forsida/



