20.02.2013
Breyttur afgreiðslutími vegabréfa
Frá og með 1. mars 2013 verður afgreiðslutími vegabréfa 10 virkir dagar, þ.e.a.s. vegabréfin fara í póst á 10 virka degi frá því að sótt var um. Umsóknardagurinn er fyrsti dagur. Sjá meðfylgjandi töflu.
Þetta á við um þær umsóknir sem koma inn 1. mars og eftir það þangað til annað verður tilkynnt.
Ef sótt er um: Fer vegabréfið í póst:
Á mánudegi Föstutudag í næstu viku
Á þriðjudegi Mánudag í þarnæstu viku
Á miðvikudegi Þriðjudag í þarnæstu viku
Á fimmtudegi Miðvikudag í þarnæstu viku
Á föstudegi Fimmtudag í þarnæstu viku
Ath. að ef frídagar eru á tímabilinu þá lengist tíminn sem þeim nemur.


