Myndlistarsýning opnuð - uppboð á völdum verkum til stuðnings mannúðarmálum

Viðburðir í Peking 8 des. 2011, 40 árum eftir að samkomulag um stjórnmálasamband gekk í gildi:
Myndlistarsýning opnuð - uppboð á völdum verkum til stuðnings mannúðarmálum
Sýning á verkum um þrjátíu íslenskra og kínverskra samtímalistamanna var opnuð í sendiráði Íslands í dag, 8. desember. Yfirskrift sýningarinnar, sem haldin er í samvinnu sendiráðsins við The Chinese European Art Center (CEAC) í Xiamen er Þjóðaspjall: Myndlist og ljóðlist. Hluti sýningarinnar er innsetning brota úr ljóðum íslenskra skálda sem tóku þátt í ljóðahátíð í Kína í haust. Sýningarstjóri er Ineke Gudmundsson, sem stofnaði framangreinda listamiðstöð í Xiamen ásamt Sigurði Guðmundssyni eiginmanni sínum fyrir rúmum áratug. Hluti verkanna á sýningunni er til sölu og var í dag opnað uppboð á völdum verkum. Ágóðinn rennur til Menningarmiðstöðvar landsbyggðarkvenna í Kína en hún er rekin af mannúðarsamtökum sem vinna markvisst að því að draga úr félagslegri einangrun ungra kvenna í hinum dreifðu byggðum Kína. Heiðursgestir við opnun sýningarinnar í sendiráðinu í dag voru Sigurður Guðmundsson listamaður og prófessor Wu Qing sem er forstöðukona menningarmiðstöðvarinnar.
Ísland í brennidepli í kínverska sjónvarpinu
Á þessum degi fyrir fjórum áratugum tók gildi ákvörðun stjórnvalda í Kína og á Íslandi um gagnkvæma viðurkenningu og formlegt stjórnmálasamband milli ríkjanna. Þessa hefur verið minnst með margvíslegum hætti á árinu, bæði í Kína og á Íslandi. Sendiráð Ísland í Kína efndi m.a. til viðamikillar menningarviku í Peking í október og hefur efnt til sérstakrar samvinnu við kínverska ríkissjónvarpið, CCTV. Fyrsti sjónvarpsþátturinn sem er afrakstur þess samstarfs verður frumsýndur í kínverska sjónvarpinu í kvöld og er ferðaþáttur.
Íslensku myndlistarmenn sem eiga verk á sýningunni Þjóðaspjall: Myndlist og ljóðlist eru meðal þékktustu samtímalistamanna þjóðarinnar. Kínversku listamennirnir eru allir þekktir í Kína og hafa sumir þeirra getið sér gott nafn á sýningum erlendis, t.d. á Feyneyjatvíæringnum.
Þekkt listafólk
Íslensku listamennirnir eru: Hulda Hákon, Hreinn Friðfinnson, Inga Svala Þórsdóttir, Jón Óskar, Kristján Guðmundsson, Ragna Róbertsdóttir, Sara Riel, Sigurður Guðmundsson, Hreinn Friðfinnssson, Helena Hansdóttir, Erró, Erla Harldsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Goddur, Guðrún Einarsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og Gjörningaklúbburinn en í honum eru Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir. Þá er að finna í sendiráðinu verk Ásgríms Jónssonar, Jóhönnu Bogadóttir, Jóns Reykdal, Sigurðar Sigurðssonar og Tryggva Ólafssonar sem öll eru í eigu Listasafns Íslands.
Kínversku listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Kan Xuan, Xu Huijing, Yang Jian, Jia Zhixing, Huang Yan.
Sýning á samtímalist í sendiráðinu er liður í sérstöku kynningarverkefni utanríkisþjónustunnar á íslenskri myndlist og er sendiráðið í Peking eitt fimm sendiráða sem taka þátt í og útfæra verkefnið. Hin eru sendiráðin í Berlín, Brussel, Kaupmannahöfn og París.
Nánari upplýsingar veitir Kristín A. Árnadóttir sendiherra og/eða Hafliði Sævarsson menningarfulltrúi sendiráðsins í síma 5457957 fram til kl. 14.00 (vegna tímamunar) og Auður Edda Jökulsdóttir menningarfulltrúi utanríkisráðuneytisins í síma 5459937.
Um samstarfsaðilana:
CEAC. Kínversk evrópska listamiðstöðin, CEAC, í Xiamen var stofnuð 1999. Miðstöðin skipuleggur listasýningar og aðra menningarviðburði og hvers konar samtímasýningar, s.s. kvikmyndasýningar og hönnunarsýningar, stendur fyrir tónlistarviðburðum og útgáfu listaverkabóka. Listamiðstöðin hefur frá árinu 2001 tekið á móti hundruðum evrópskra listamanna í Xiamen sem margir hverjir hafa dvalið um tíma í gestaíbúðum og haft aðgang að gestavinnustofum CEAC. Ineke Gudmundsson er stofnandi CEAC. Nánari upplýsingar er að finna á ccc.ceac99.org.
Menningarmiðstöð landsbyggðarkvenna er heiti sjálfboðaliða- og mannúðarsamtaka sem vinnur að uppbyggingu og velferðarmálum kvenna í hinum dreifðu byggðum Kína. Samtökin hófu starfsemi sína á útgáfu tímarits en á þeirra vegum hafa á síust árum verið byggð upp margvísleg stuðnings- og framfaraverkefni sem ætlað er að styrkja ungar konur og fátækar konur, efla félagsfærni, sjálfstraust og samvinnu meðal kvenna. Professor Wu Qing er ein af stofnendum samtakanna. Íslensk kona, Erla Karen Magnúsdóttir, fékk rausnarlegan styrk frá Auði Capital á Íslandi til verkefna í samvinnu við samtökin og er starf hennar mikils metið af þeim.
Ennfremur má finna nánari upplýsingar hér:
www.utanrikisraduneyti.is/frettir


