02.12.2011

Kvennafundur í Peking

Íslensk sendinefnd átti í gær árangursríkan fund með kvennasamtökum Kína, All-China Women's Federation (ACWF) þar sem ræddir voru möguleikar á samvinnu Kína og Íslands í jafnréttismálum. ACWF hefur stöðu ráðuneytis í Kína og hjá því vinna 78.000 starfsmenn í fullu starfi. Meng Xiaosi, varaforseti samtakanna þakkaði þátttöku íslensku kvennanna í nýafstöðnu þingi sem samtökin stóðu fyrir um konur og sjálbæra þróun sem haldið var í Peking. Samtökin vinna að marvíslegum hagsmunamálum kvenna í Kína, m.a. á sviði heilsugæslu, menntunar og forvarna auk þess sem samtökin hafa komið á fót sjóði sem veitir vaxtalaus lán til verkefna og fyrirtækja kvenna. Um 25% frumkvöðlafyrirtækja eru rekin af konum. Fram kom í máli varaforseta samtakanna að gríðarlegur árangur hefði náðst í jafnréttismálum í Kína síðan 1949 þegar bannað var með lögum að reyra fætur kvenna eins og fram til þess tíðkaðist í Kína. Meng Xiaosi lýsti mikilvægi þess að konur ólíkra ríkja ynnu saman að hagsmunamálum sínum, deildu reynslu og aðferðum sem nýtast til aukins jafnréttis og framþróunar.



Inspired by Iceland