Um sendiskrifstofu
Sendiráðið í Brussel er fjölmennasta sendiskrifstofa Íslands. Ástæðan fyrir stærð skrifstofunnar er sú að ásamt hefðbundinni tvíhliða starfsemi er hlutverk hennar að vera sendiráð Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB). Meginhluti starfseminnar snýr því að þeim þætti, sérstaklega vegna ESB aðildarviðræðna og EES-samningsins en einnig vegna ýmiss annars Evrópusamstarfs s.s. þátttöku Íslands í Schengen.
Hvað tvíhliða starfsemi varðar þá eru umdæmisríki sendráðsins fimm: Belgía, Lúxemborg, Holland, Sviss og San Marino og eru ræðismenn starfandi í fjórum af þeim ríkjum. Sendiráðið sinnir hefðbundnu hlutverki sendiskrifstofa gagnvart umdæmisríkjunum þ.e.a.s. að veita aðstoð við Íslendinga og gæta hagsmuna Íslands í víðum skilningi, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningarmála.
Rond-Point Schuman 11
1040 Bruxelles
Opið virka daga 09:00-17:00


