19. desember 2011 14:34
Handbók Íslandsfélagsins í Belgíu



Þórir Ibsen sendiherra bauð til móttöku í sendiherrabústaðnum í Brussel í tilefni útkomu nýrrar handbókar Íslandsfélagsins sem gerð var í samstarfi við sendiráðið.
Einnig var opnuð ný heimasíðu Íslandsfélagsins og flutti formaður félagsins Jónas Jóhannsson stutt ávarp og kynnti bókina og heimasíðuna sem hvor tveggja eru ætlaðar til að miðla upplýsingum til félagsmanna Íslandsfélagsins um málefni tengd samskiptum Íslands og Belgíu.


