27. apríl 2012 13:26
Fabulous Iceland – Portraits of contemporary Icelandic authors hjá Svæðanefnd ESB
Sýningin „ Fabulous Iceland – Portraits of contemporary Icelandic authors“ hefur verið til sýnis frá 17.04. í salarkynnum Svæðanefndar ESB í Brussel. Sýningin sem samanstendur af ljósmyndum eftir Kristin Ingvarsson ásamt texta eftir blaðamanninn Pétur Blöndal varpar ljósi á mikilvægi íslensks bókmenntaarfs í starfi rithöfunda í dag.
Þórir Ibsen sendiherra Íslands gagnvart ESB og Flo Clucas frá Svæðanefnd ESB ávörpuðu gesti á opnun sýningarinnar og fjölluðu um mikilvægi framlags Íslands til evrópskrar menningar.




