Schengen samstarfið
Frá 25. mars 2001 hefur Ísland verið þátttakandi í samstarfi með öðrum Evrópuríkjum sem kennt er við Schengen. Samvinna þessi felur í sér að fellt hefur verið niður eftirlit með ferðum fólks yfir sameiginleg landamæri 23 ríkja sem eiga aðild að ESB, sem og Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss. Á sama tíma hefur eftirlit verið styrkt gagnvart öðrum ríkjum utan svæðisins.


