Aðstoð við Íslendinga
Sendiráðið hefur það hlutverk að aðstoða íslendinga í umdæmisríkjum þess. Sendiráðið annast framkvæmd vegna utankjörstaðaatkvæðagreiðslna, getur annast framlengingu á gildistíma vegabréfa, útgáfu neyðarvegabréfa og móttekið umsóknir um endurnýjun ökuskírteina svo eitthvað sé nefnt.
Sé þörf á frekari upplýsingum um aðstoð við íslendinga erlendis er bent á vef borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins en einnig má hafa samband við starfsfólk sendiráðsins.
Fyrir þá sem huga að flutningum til Belgíu er vert að skoða vefinn www.coming2belgium.be en þar má m.a. finna upplýsingar um réttindi, skilmála og kröfur vegna flutninga til Belgíu


