22.05.2006
Tónleikar kvennakórsins Ljósbrár
Kvennakórinn Ljósbrá heldur tónleika í Votivkirche í Vín föstudagskvöldið 2. júní kl.. 19:00. Á efnisskránni verða aðallega íslensk sönglög, þjóðlög og íslensk kirkjutónlist ásamt nokkrum erlendum lögum. Einsöngvarar verða Einar Th. Guðmundsson, bariton og eiginkona hans, sópransöngkonan Katharine M. Guðmundsson.
Á annan dag hvítasunnu 5. júní verða haldnir tónleikar kl. 14:00 í Kongresshalle í þorpinu Bad Gastein. Einsöngvari verður Berglind Gylfadóttir, sópran.


