13.11.2006

Íslensk/Austurrískir tónleikar í bænum Seitenstetten

Að kvöldi föstudagsins 17. nóvember 2006 verða haldnir tónleikar í klaustri austurríska bæjarins Seitenstetten þar sem viðstöddum gefst færi á að njóta íslenskra og austurrískra tóna. Fyrri hluti dagskrárinnar samanstendur af tvísöng, þrísöng og kvartett sungnum af íslenskum listamönnum. Í hléi verður boðið upp á léttar veitingar en eftir hlé verða flutt atriði úr óperettunni Der Bettelstudent ásamt Der Zigeunerbaron og Die Fledermaus.

 Tónleikarnir eru haldnir að frumkvæði Antons Steingruber, söngvara og söngkennara, og fram munu koma bæði íslenskir nemendur hans sem og austurrískir listamenn. Söngvarar kvöldsins verða Þórunn Marínósdóttir, Edith Kalterböck, Doris Pfleger, Hlöðver Sigurðsson, Páll Jakob Líndal, Ásgeir Páll Ágústsson og Anton Steingruber. Yuri Ivamoto Schneider mun spila undir á slaghörpu og Manfred Schörghuber sýnir ljósmyndir.

 Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 í Theaterssal og má nálgast miða í forsölu í Klostenladen Seitenstetter (í síma  0043 07477/42300-277), í bókabúðinni Lehner Seitenstetten, Expert Bruckner –Hausmening, Nähladen Erika – Aschbach og Buchhandlung Ennsthaler Waidhofen/Ybbs.





Inspired by Iceland