Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí 2010 hefst í Sendiráði Íslands í Vín á þríðjudaginn, 6. apríl 2010
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á erlendri grundu vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí 2010 hefst í Sendiráði Íslands í Vínarborg þríðjudaginn, 6. apríl nk.
Hægt er að kjósa í sendiráðinu mánudaga til föstudaga frá kl. 9 til 16 fram að kjördegi.
Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verður að finna á vefsetrinu: www.kosning.is
Kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum hafa þeir sem eiga lögheimili á Íslandi.
Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.


