04.05.2012
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga 30. júni 2012 hefst í Sendiráði Íslands í Vín á mánudaginn, 7. maí 2012
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á erlendri grundu vegna forsetakosninga 30. júni 2012 hefst í Sendiráði Íslands í Vínarborg mánudaginn, 7. maí nk.
Hægt er að kjósa í sendiráðinu mánudaga til föstudaga frá kl. 9 til 16 fram að kjördegi.
Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru framboðendur á vefsetrinu www.kosning.is, þar sem einnig er að finna hagnýtar upplýsingar um kosningarnar.
Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.


