Norræn kvikmyndahátið í Urania í Vín, 16.-22. apríl 2009
Likt og undanfarin ár verður haldin norræn kvikmyndahátið í Urania í Vín í samvinnu við sendiráð Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Hátiðin er nú haldin í 16. skipti undir yfirskriftinni "Geschichte(n) im Norden " eða "sögur frá Norðri". Unnendur norræna kvikmynda geta notið góðs úrvals kvikmynda frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, en 13 kvikmyndir verða sýndar á hátiðinni í ár. Allar kvikmyndirnar verða sýndar á frummálinu með enskum eða þýskum texta og er miðaverð 6,- evrur.
Íslensku kvikmyndirnar sem sýndar verða eru eftirfarandi:
Veðramót
Föstudaginn, 17. apríl, kl. 21 (2007, leikstjóri: Gudný Halldórsdóttir, frummynd með enskum texta)
Börn
Mánudaginn, 20. apríl, kl. 19 (2006, leikstjóri: Ragnar Bragason, frummynd með enskum texta)
Foreldrar
Mánudaginn, 20. apríl, kl. 21 (2007, leikstjóri: Ragnar Bragason, frummynd með enskum texta)
Nánari upplýsingar má finna á vefsloð Urania: http://www.urania.vhs.at


